Á öðrum tímanum í dag var óskað eftir aðstoð björgunarsveita þegar rúta festist í Steinholtsá í Þórsmörk. Nærstaddir björgunarsveitarmenn komu fljótlega á vettvang og þá var búið að koma öllum farþegum frá borði.
Björgunarsveitarmennirnir og aðrir á svæðinu hófust þá handa við að bjarga rútunni úr ánni og tókst það vel. Rútan var komin á þurrt um hálftíma eftir að útkall barst.
Stuttu áður en útkallið í Þórsmörk barst var björgunarskipið á Höfn kallað út vegna trillu sem hafði orðið vélarvana þegar hún sigldi inn Hornafjarðarós í svartaþoku. Fimm mínútum síðar var björgunarskipið Ingibjörg lagt af stað úr höfn en þá barst tilkynning um að trillan hafði hrokkið í gang og komst hún af sjálfsdáðum til hafnar.