Boð send í farsíma ef Hekla fer að gjósa

Enn er í gildi óvissustig vegna Heklu. Engir atburðir eru nú í gangi sem benda til að eldgos sé yfirvofandi en Almannavarnir, í samráði við Veðurstofu Íslands, fylgjast áfram með þróun mála.

Veðurstofan og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra standa vaktina yfir páskahátíðina og upplýsa almenning ef eitthvað nýtt kemur í ljós.

Ríkislögreglustjórinn og lögreglustjórinn á Hvolsvelli vara áfram við ferðum fólks á Heklu á meðan að óvissustig er í gildi.

Komi til atburðar við Heklu verður notast við boðunarkerfi Neyðarlínunnar sem sendir út skilaboð í alla þá farsíma sem eru tengdir farsímasendum næst fjallinu.

Að óbreyttu verður staðan endurmetin í næstu viku.

Fyrri greinÞorsteinn Björn íþróttamaður ársins
Næsta greinLést á Skeiðavegi