Stálheppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rétt rúmar 35 milljónir króna í vinning. Miðann góða keypti hann í Lottó appinu.
Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 344 þúsund krónur. Annar miðinn var keyptur í Versluninni Bakkinn á Eyrarbakka og hinn miðinn var keyptur á lotto.is.
Lottótölur kvöldsins voru 4 – 24 – 30 – 35 – 42 og bónustalan 19.