Stjórnlaganefnd og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga halda borgarafund um endurskoðun stjórnarskrárinnar í Félagsheimilinu Hvoli þriðjudaginn 19. október frá klukkan 17-19.
Fundurinn er kynningafundur um stjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað er eftir sjónarmiðum íbúa. Guðrún Pétursdóttir formaður stjórnlaganefndar og Njörður P. Njarðvík nefndarmaður í stjórnlaganefnd halda erindi og svara spurningum þátttakenda.
Stjórnlaganefnd var kosin af Alþingi í sumar til þess að undirbúa endurskoðun stjórnarskrárinnar. Nefndinni er ætlað að finna og leggja fram gögn fyrir stjórnlagaþing, standa fyrir Þjóðfundi um endurskoðun á stjórnarskrá, vinna úr upplýsingum frá fundinum og afhenda stjórnlagaþingi og loks að leggja fram hugmyndir að breytingum á stjórnarskránni.
,,Við viljum kynna Sunnlendingum þau áform sem eru uppi um endurskoðun á stjórnarskrá lýðveldisins. Við sem stöndum að undirbúningum óskum einnig eftir því að fá að heyra sjónarmið fólks um hvernig samfélag það vill byggja. Við hvetjum íbúa til að mæta á fundinn og láta rödd sína heyrast,“ sagði Guðrún Pétursdóttir í samtali við sunnlenska.is.