Borgarafundur um íþróttaaðstöðu í Hveragerði verður haldinn á Hótel Örk í kvöld, mánudaginn 11. desember kl. 20:00.
Óskað var eftir fundinum með undirskriftarsöfnun en frummælendur á fundinum verða Íris Brá Svavarsdóttir, sem var ábyrgðarmaður undirskriftarsöfnunarinnar, fulltrúi frá Íþróttafélaginu Hamri og fulltrúar allra flokka sem sæti eiga í bæjarstjórn.
Þátttakendum mun gefast tækifæri til að taka þátt í umræðum og leggja fram fyrirspurnir.
Fundinum verður streymt hér að neðan, frá Youtube rás Hveragerðisbæjar.