Breski ferðamaðurinn sem leitað hefur verið að á Þingvöllum frá því í morgun er fundinn.
Hann var á göngu við Botnsúlur þegar leitarmenn í þyrlu LHG komu auga á hann.
Maðurinn var fluttur með þyrlunni á sjúkrahús í Reykjavík. Hann var þreyttur og illa áttaður en að öðru leiti vel á sig kominn.
Lögregla þakkar leitarmönnum öllum vel unnin störf.
TENGDAR FRÉTTIR:
Ferðamanns leitað á Þingvöllum