Brotist var inn í tvo sumarbústaði í Hrunamannahreppi í gærkvöldi og flatskjá meðal annars stolið úr öðrum þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi unnu þjófarnir nokkrar skemmdir á bústöðunum við að komast inn í þá.
Þeir komust undan á bíl og eru ófundnir.