Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar hafa látið hendur standa fram úr ermum síðustu daga við Múlakvísl og gengur brúarsmíðin vonum framar.
Í morgun voru komin upp sex svokölluð ok af tíu eða þrjár bitalengdir. Eru því komnir upp 50 metrar af brú nú þegar. Í dag verður lokið við að reka niður alla tréstaura í undirstöður bráðabrigðabrúarinnar.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að reiknað sé með að ljúka við uppsetningu okanna í dag og síðan verður haldið áfram þannig að annað kvöld eða aðfararnótt föstudagsins verði brúin tilbúin þannig að unnt verði að hleypa ánni undir hana, þótt nokkur vinna verði eftir við frágang. Þá verður eftir vinna við að hemja fljótið og stefna því undir brúna með byggingu grjótvarinna varnargarða. Í kjölfarið verður hægt að tengja veginn við brúna og koma umferð á.
Ekki er á þessu stigi unnt að tímasetja nákvæmlega hversu langan tíma það tekur, en fljótið og vatnsmagnið ráða nokkru um það.
Nú þegar er hafin vinna við að tengja veginn við brúna að vestanverðu og jafnframt þarf að verja hana og veginn þeim megin. Einnig er nauðsynlegt að lagfæra langan varnargarð að austanverðu sem skemmdist í flóðinu, þann garð þarf að lengja töluvert og grjótverja til að hemja fljótið undir nýju bráðabrigðabrúna.