Slökkvilið hefur nú afhent brunavettvang á Kirkjuvegi á Selfossi til lögreglu til rannsóknar.
Enn eru að koma upp glæður í húsinu og því verður brunavakt áfram við vettvang.
Lögregla og tæknideild eru að hefja vinnu á vettvangi en byrjað verður á því að tryggja milligólf vegna hrunhættu.
Skýrslutökur af málsaðilum sem handteknir voru á vettvangi fara fram í dag.