Mjög djúp lægð er skammt vestur af landinu og sunnan lægðarmiðjunnar er vindstrengur með vestan stormi.
Útlit er fyrir að hann komi inn á suðvestanvert landið síðdegis og yfir Hellisheiðina, um Þrengsli og Mosfellsheiði má gera ráð fyrir allt að 18-23 m/s með hríðarveðri og á köflum litlu skyggni. Frá því upp úr kl. 16 og fram á kvöld.
Á morgun verður kalt og skaplegt veður á landinu með éljum á víð og dreif.