Ný kennslustofa sem rúmar allt að fimmtán nemendur var tekin í notkun í fangelsinu í Bitru í Flóahreppi í lok ágúst.
Áður hafði Fjölbrautaskóli Suðurlands til afnota litla vistarveru í fangelsinu sem rúmaði að hámarki sex nemendur en nú er öldin önnur.
„Þetta er bylting ekki breyting,“ segir Ingi S. Ingason, kennslustjóri á Litla Hrauni, á heimasíðu FSu.
Fimmtán nemendur eru skráðir í nám í Bitru á þessari önn, en þrír kennarar kenna í Bitru, Úlfur Björnsson sem kennir stærðfræði og landafræði, Helgi Þorvaldsson sem kennir ensku og Gylfi Þorkelsson sem kennir íslensku.