Byrjað verður að bólusetja við mislingum á öllum heilsugæslum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í dag. Þeim sem verður boðin bólusetning til að byrja með eru óbólusett börn frá 12 mánaða aldri til 18 ára.
Hluti af því bóluefni sem er að berast landsins kemur á heilsugæslur á Suðurlandi í dag og restin kemur á þriðjudag ef áætlanir ganga eftir. Byrjað verður að bólusetja í dag og haldið áfram eftir helgi.
Eingöngu er hægt að bóka 12 mánaða til 18 ára börn að svo stöddu. Í næstu viku verður boðið upp á bólusetningu fyrir 18 ára til 49 ára, en nánar verður tilkynnt um það síðar.
Nánari upplýsingar varðandi aldursskiptingu við bólusetningu og aðrar upplýsingar um mislinga má finna á www.landlaeknir.is.