Dæmdur gæsluvarðhald í stað farbanns

Lithái sem úrskurðaður var í farbann vegna meints innflutnings á kókaíni var í gær gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 2. desember næstkomandi.

Þetta var niðurstaða Hæstaréttar eftir að lögreglustjórinn á Selfossi kærði til Hæstaréttar úrskurð héraðsdóms um að maðurinn skyldi sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds eins og lögreglustjóri gerði kröfu um. Hann er einn þeirra sem handtekinn var eftir að tæp 400 gr af kókaíni fundust í sumarbústað í Árnessýslu á dögunum.

Lögreglustjórinn taldi hættu á að maðurinn myndi reyna að komast úr landi áður en mál hans yrði til lykta leitt og því væri farbann ekki nægilega örugg leið til að koma í veg fyrir það.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið manninn og komið í hendur Fangelsismálastofnunar.

Fyrri greinVerður tæpast að veruleika nema vegna stóriðjuáforma
Næsta greinLætur af störfum í kjölfar keppnisbanns