D-listinn hélt sínu í Ölfusinu

Hluti frambjóðenda D-listans í Ölfusi. Ljósmynd/Aðsend

D-listi Sjálfstæðisflokksins hélt velli og vann öruggan sigur í Sveitarfélaginu Ölfusi. Sjálfstæðisflokkurinn verður áfram með hreinan meirihluta en D-listinn fékk 669 atkvæði 55,9% og fjóra menn kjörna.

B-listi Framfarasinna fékk 381 atkvæði 30,5% og tvo menn kjörna og H-listinn, Íbúalistinn, fékk 171 atkvæði 13,7% og einn mann kjörinn. Alls kusu 1.251 en kjörsókn var 70,1%.

Sveitarstjórn Ölfuss verður þannig skipuð:
(D) Gestur Þór Kristjánsson
(D) Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir
(D) Grétar Ingi Erlendsson
(D) Erla Sif Markúsdóttir
(B) Hrönn Guðmundsdóttir
(B) Vilhjálmur Baldur Guðmundsson
(H) Ása Berglind Hjálmarsdóttir

Fyrri greinD-listinn nær völdum í Hrunamannahreppi
Næsta greinStórtíðindi úr Hveragerði: D-listinn kolfallinn