Dagbók lögreglu: Ölvaður ökumaður klipptur út eftir veltu

Góð tíð hefur verið hjá lögreglumönnum á Suðurlandi að undanförnu og ekkert stórvægilegt kom uppá. Skráð umferðaróhöpp voru fjórtán talsins.

Karlmaður í Þorlákshöfn var úrskurðaður, af lögreglustjóra, í nálgunarbann eftir að hafa brotið gegn sambýliskonu sinni.

Ökumaður vörubifreiðar var stöðvaður á Selfossi fyrir helgi vegna gruns um að vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Hald var lagt á smávegis af hvítu dufti sem maðurinn var með á sér. Duftið verður sent til rannsóknar.

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur í Rangárþingi. Annar þeirra hafði ekið útaf Suðurlandsvegi við Hvítanes. Í hinu tilvikinu ók ökumaður útaf Suðurlandsvegi við Eystri-Rangá. Bifreiðin fór á hvolf og þurfti klippubúnað til að ná manninum út úr henni. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæslustöðina á Selfossi. Þar kom í ljós að hann var með minni háttar áverka.

Fyrri greinJökulmælingar Hvolsskóla fengu styrk úr Samfélagssjóði
Næsta greinÞórir heimsmeistari í annað sinn