Dagrenning kom böndum á hlöðuþak

Frá útkallinu í dag. Ljósmynd/Landsbjörg

Fyrr í dag var björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli kölluð út vegna hættu á að þak á hlöðu á sveitabæ rétt suður af Hvolsvelli myndi fjúka.

Björgunarsveitarfólk fór á staðinn og náði að koma böndum á sperrur og þverbönd inni í hlöðunni og þannig tryggja það að þakið lyftist ekki af í þeim suðvestan stormi sem þarna var.

Tíu manns komu að verkefninu, sem var lokið rétt um klukkan hálf þrjú og hélt þá björgunarfólk aftur til sinna heima.

Fyrri grein„Rússíbani, heimþrá og ævintýri allt í bland“
Næsta greinPabbi átti alltaf gott samband við Gáttaþef