Dagur íslenska fjárhundsins

Að venju er 18. júlí Dagur íslenska fjárhundsins, haldinn hátíðlegur á Íslandi og víða um heim.

Vaxandi áhugi er fyrir deginum og margir eigendur íslenskra fjárhunda taka þátt í að gera daginn sérstakan með ýmsum viðburðum ár hvert.

Meðal dagskráliða í ár munu nokkrir eigendur íslenskra fjárhunda vera með hunda sína á Árbæjarsafni þar sem þeir sýna rallý-hlýðni æfingar. Annars verður dagskráin í ár lágstemmd í samræmi við ástandið í þjóðfélaginu en hvert ár er valið sérstakt þema tengt hundunum.

Í ár er vakin athygli á hversu mikilvægur félagsskapur hundsins er á tíma Covid-einangrunnar. Vinnuhópurinn 18. júlí tók nýlega þátt í verkefni á vegum Íslandsstofu til að kynna íslenska fjárhundakynið. Kynninguna má sjá hér að ofan en nú hafa tæplega 40 þúsund manns horft á kynninguna sem er til marks um vinsældir íslenska fjárhundsins.

Fyrri greinSuðurlandsdjazz á pallinum við Hótel Selfoss
Næsta greinHamar vann toppslaginn