Í dag kl. 14-16 standa Erfðanefnd landbúnaðarins og Byggðasafn Árnesinga fyrir málþingi um kartöfluna í Húsinu á Eyrarbakka
Dagur kartöflunnar er haldinn til að minna á mikilvægi þess að viðhalda ræktun hennar og eins til að sýna þann breytileika sem finnst í kartöfluyrkjum hér á landi. Flutt verða fróðleg erindi um norrænt samstarf og varðveislu erfðaauðlinda, áhrif kartöflunnar á þéttbýlismyndun á Íslandi og nýtingu kartöflunnar.
Tekið verður upp úr kartöflugarði byggðasafnsins og gestum gefst kostur á að sjá mismunandi kartöfluyrki.
Þá verður samkeppni um besta kartöfluréttinn. Allir geta tekið þátt og komið með sýnishorn af kartöflurétti. Dómnefnd velur besta réttinn og veitt verða vegleg verðlaun.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir, aðgangur ókeypis.
Dagskrá:
14:00-14:15 Áslaug Helgadóttir – Norrænt samstarf
14:20-14:40 Hildur Hákonardóttir – Áhrif kartöflunnar á þéttbýlismyndun á Íslandi
14:45-15:05 Brynhildur Bergþórsdóttir – Nýting kartöflunnar
15:15-16:00 Tekið upp úr kartöflugarðinum og úrslit í kartöfluréttarkeppni kynnt