FréttirDópaður með barn í bílnum 20. júní 2010 11:28Maður var handtekinn í Hveragerði grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna um kvöldmatarleytið í gær. Maðurinn var með barn sitt meðferðis og hafði lögregla veitt honum eftirför áður en hann lét undan og var handtekinn.