Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Þingvallavegi við Álftavatn í morgun grunaðan um að aka undir áhrifum fíkniefna.
Auk þess fannst lítilræði af fíkniefnum á manninum sem var færður á lögreglustöðina á Selfossi til skýrslu- og blóðsýnatöku.
Mál hans verður sent ákæruvaldinu.