Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi í dag fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Tveir Rangæingar hlutu riddarakross, þau Drífa Hjartardóttir, bóndi á Keldum á Rangárvöllum og fyrrverandi alþingismaður, fyrir sveitarstjórnarstörf og framlag til menningarmála í heimabyggð og Guðni Guðmundsson bóndi á Þverlæk fyrir framlag til umhverfisverndar og samfélagsþjónustu.
Meðal annarra orðuhafa voru Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur, Mats Wibe Lund ljósmyndari, Ólöf Margrét Magnúsdóttir sérkennari og Karen J. Sturlaugsson, tónlistarkennari og hljómsveitarstjórnandi.