Lögreglumenn stöðvuðu ökumann ferðaþjónustufyrirtækis á Suðurlandsvegi við Hvolsvöll á laugardagskvöld til að skoða búnað bifreiðarinnar.
Bifreiðin dró kerru sem var ljóslaus og á nagladekkjum. Þá voru stöðuljós bifreiðarinnar í ólagi og ástand ökurita aðfinnsluvert.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.