Dró úr gosinu undir morgun

Stöðugur kraftur var í eldgosinu í Eyjafjallajökli í nótt allt til klukkan 4:30 en fór þá heldur að draga úr því. Gosmökkurinn fór mest í 8,5 km hæð. Öskufall er töluvert undir Eyjafjöllum.

Mjög dimmt er sunnan undir jöklinum og öskufall er mjög þétt frá Núpi í vestri allt austur í Vík en er heldur minna á Mýrdalssandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er eins og keyrt sé inn í vegg úr vestri við Núp. Í mekkinum sést ekki til jarðar úr bílnum.

Frá miðnætti til kl. 4:40 mældust 22 eldingar yfir gosinu og er það meira en í allan gærdag.

Nokkrir litlir jarðskjálftar hafa mælst í Öskju í nótt (1,2 – 1,3 á Richter) og í Krossárjökli (2,2 – 2,3 á Richter).

Fyrri greinÁrborg og Laugdælir sigruðu
Næsta greinLeik KFR og Sindra frestað vegna eldgossins