Dýr dagsferð í Jökulsárlón

Mynd úr safni. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurlandi

Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði í gær erlendan ferðamann en hann ók bílaleigubifreið sinni á 142 km hraða á Mýrdalssandi fyrir austan Vík í Mýrdal. Hálkublettir voru í vegaköntum á þessum slóðum þar sem brotið átti sér stað.

Kvaðst ferðamaðurinn vera að drífa sig í Jökulsárlón en hann væri í dagsferð frá Reykjavík og því hefði hann knappan tíma í dagsbirtunni.

Ökumaðurinn þarf að greiða ríflega sekt fyrir hraðakstursbrotið eða 150.000 krónur. Aðspurður kvaðst ökumaður ekki hafa ekið í vetrarfærð áður og lofaði að aka miðað við aðstæður hér eftir.

Fyrri greinHart á hrossum
Næsta greinEr alltaf með skóflu í bílnum