Samkomulag hefur tekist um kaup norska fjármála og tæknifyrirtækisins ECIT AS á meirihluta í bókhalds- og launaþjónustu KPMG sem rekin hefur verið undir heitinu Bókað. Gert er ráð fyrir endanlegum frágangi viðskiptanna í ársbyrjun 2025 en KPMG verður áfram hluthafi.
Starfsfólk Bókað telur um 80 manns og sinnir það þjónustu við um 2.000 fyrirtæki og stofnanir um land allt. Bókað rekur skrifstofur víða um land, meðal annars á Selfossi, Hellu, í Vestmannaeyjum og á Höfn í Hornafirði. Engar breytingar eru fyrirhugaðar í mannahaldi eða starfsstöðvum Bókað né heldur í þjónustuþáttum gagnvart viðskiptavinum.
Framkvæmdastjóri félagsins verður Birna Mjöll Rannversdóttir sem hefur verið sviðsstjóri bókhaldssviðs KPMG til fjölda ára og verið meðeigandi hjá KPMG frá árinu 2015. Með kaupunum verður Bókað hluti af öflugu neti á sínu sérsviði en ECIT veitir bókhalds- og launaþjónustu á öllum Norðurlöndunum auk nokkurra annarra landa. ECIT hefur starfað á Íslandi frá árinu 2023 og hefur áður fjárfest í fjármálaþjónustu og bókhaldsfyrirtækinu Virtus auk smærri eininga á sviði bókhalds- og launaþjónustu. Starfsfólk ECIT á Íslandi mun samtals telja um 110 eftir að kaupin ganga í gegn.
„Það er mikilvægt fyrir okkur að geta boðið okkar viðskiptavinum bestu lausnir í bókhalds- og launaþjónustu sem völ er á og þar stendur ECIT AS vel að vígi. Við viljum skerpa á þjónustuframboði KPMG í samræmi við áherslur félagsins á alþjóðavettvangi á sviði endurskoðunar, reikningsskila, ráðgjafar, lögfræði- og skattaþjónustu. Við stefnum að því að sækja enn frekar fram á okkar sérsviði og það er mikilvægt að eiga í samstarfi við öflugt félag á sviði launavinnslu og bókhaldsþjónustu til að geta tryggt viðskiptavinum okkar áfram þjónustu á breiðum grunni,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri KPMG.