FréttirEftirlitsmyndavél stolið 31. október 2011 15:50Í gær fékk lögreglan á Hvolsvelli tilkynningu um þjófnað á eftirlitsmyndavél og hlutum úr hraðahindrun á Hellu. Málið er í rannsókn og óskar lögreglan eftir því að þeir sem hafi upplýsingar um málið hafi samband við lögregluna í síma 488 4110.