Íslenskar landnámshænur sem sluppu úr hænsnakofa á Hvolsvelli um helgina hafa gengið lausar um bæinn og skilið eftir sig glaðning víða, en egg liggja á víð og dreif um Hvolsvöll.
Illa hefur gengið að smala hænunum saman en talið er að fimmtán hænur og einn hani leiki lausu stéli á Hvolsvelli.
Finnur Bjarki Tryggvason var einn þeirra sem fór á stjá í dag og var hann búinn að finna talsvert af eggjum.
„Við höfum fundið egg við grunnskólann og bakvið sundlaugina og ég heyrði af eggjum sem fundust í Stóragerðinu á Gamla róló og víðar,“ sagði Finnur Bjarki í samtali við sunnlenska.is.
Á Facebook síðunni Naflinn er fólk hvatt til að setja inn myndir og fréttir af eggjaleitinni.
UPPFÆRT KL. 22:54: 1. APRÍL!!!!