Ef hugmyndir stjórnvalda verða að veruleika eru horfur á að einn milljarður króna verði settur í almenningssamgöngur á suðvesturhorninu.
Að sögn Þorvarðar Hjaltasonar, framkvæmdastjóra SASS, gætu þessir fjármunir nýst til að efla slíkar samgöngur austur á Selfoss.
,,Ég lít á þetta sem jákvæða hugmynd,” segir Þorvarður en hugmyndin var kynnt á morgunverðarfundi innanríkisráðuneytisins um almenningssamgöngur sem haldinn var í síðustu viku.
Að sögn Þorvarðar gæti þetta breytt grundvelli almenningssamgangna á svæðinu verulega.
Óvissa er um fyrirkomulag strætóferða milli Selfoss og Reykjavíkur en samningar Hveragerðis og Árborgar við Sérleyfisbíla Akureyrar um daglegar ferðir á leiðinni rennur út um næstu áramót.