Allt skólahald í grunn-, leik- og tónlistarskóla Víkur í Mýrdal fellur niður á morgun vegna öskufalls.
Fín aska hefur borist inn í húsnæði Víkurskóla og ætla starfsmenn að þrífa skólann og skólalóðina á morgun.
Stefnt er að eðlilegu skólastarfi í Vík frá og með þriðjudegi.