Fulltrúar Sveitarfélagsins Árborgar hittu Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga á fundi í vikunni þar sem farið var yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Að sögn Eyþórs Arnalds, formanns bæjarráðs Árborgar, var upplýst á fundinum hvernig bæjaryfirvöld taka á vandanum. Nefndin metur stöðuna óviðunandi en telur jákvætt að samstaða sé hjá bæjarfulltrúum allra flokka að taka málið alvarlega.
Að sögn Eyþórs var eftirlitsnefndin upplýst um að stefnt sé að því að ná jöfnuði í rekstri samstæðu bæjarins sem fyrst en erfiðara sé að ná endum saman í rekstri bæjarsjóðs, sem rekinn var með 600 milljón króna tapi í fyrra.
„Það er gríðarlegt gat sem tekur lengri tíma en eitt ár að stoppa upp í,“ segir Eyþór. Á fundinum kom einnig fram að lítið svigrúm sé til að hækka álögur til að auka tekjur sveitarfélagins. Nefndin hefur bent á að afkoma bæjarsjóðs sé þess eðlis að ekki séu til fjármunir til að borga vexti af lánum, hvað þá afborganir, og ítrekaði kröfu sína um 15 prósenta framlegð af rekstri bæjarins.
„Það er langt í land með það,“ segir Eyþór. Næsta skref sé hinsvegar að senda fjárhagsáætlun næsta árs til nefndarinnar og vinna að trúverðugri þriggja ára áætlun