Fjórtán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni vikunni, öll án meiðsla.
Í einu tilvikanna var um að ræða 14 manna rútu í för með eldri borgara um Suðurland en ekki vildi betur til en svo að rútan lenti út af Suðurlandsvegi skammt vestan Markafljóts. Atvikið átti sér stað síðastliðinn miðvikudag.
Önnur bifreið kom á vettvang og tók við akstri fólksins.