Eldsupptökin líklega af mannavöldum

Kirkjuvegur 18. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að vettvangsrannsókn ásamt sérfræðingum Mannvirkjastofnunar í húsinu við Kirkjuveg á Selfossi sem brann í gær.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að rökstuddur grunur sé um að eldsupptökin séu af mannavöldum.

Búið er að flytja líkamsleifar þeirra er létust í brunanum af vettvangi og er beðið krufningar.

Búið er að taka skýrslu af öðrum þeirra sem er í haldi lögreglu vegna brunans og skýrslutökur yfir hinum aðilanum standa yfir. Gera má ráð fyrir að báðir aðilarnir verði leiddir fyrir dómara síðar í dag og gæsluvarðhalds krafist yfir þeim í þágu rannsóknar málsins.

Fyrri greinBrunavettvangur afhentur lögreglu
Næsta greinHætta á svörtum ís í kvöld