Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu í Þorlákshöfn var kallað út eftir að eldur kom upp í bifreið á Þrengslavegi á ellefta tímanum í morgun.
Talsverður eldur var í bílnum en allir sem í honum voru komust út ómeiddir. Slökkvistarf gekk vel en bifreiðin er mikið skemmd.