Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu frá Hveragerði voru kallaðir út um klukkan hálf tíu í gærkvöldi vegna elds í bifreið í Núpagryfjum í Ölfusi, fyrir sunnan Hveragerði.
Um var að ræða númerslausa bifreið sem ungir ökumenn voru að aka í gryfjunum þegar að eldurinn kom upp. Ekki urðu slys á fólki.
Slökkviliðsmenn slökktu eldinn hratt og örugglega eftir að þeir komu á vettvang en bifreiðin er gjörónýt.