Eldur kom upp í sumarbústað skammt frá Hellu um klukkan 1 í nótt. Eldurinn kviknaði út frá arinofni og barst í timburklæðningu hússins.
Viðbragðsaðilar voru fljótir á staðinn og gekk vel að ráða niðurlögum eldsins. Þó nokkurt tjón varð á húsinu bæði vegna eldsins og þess vatnsmagns sem þurfti til þess að slökkva eldinn.
Fólk var í húsinu þegar eldurinn kom upp en engan sakaði og vel tókst að rýma húsið.