Íslenska upplýsinga-tæknifyrirtækið Endor hlaut á dögunum styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands til þess að þróa þjónustu- og umsýslukerfi fyrir viðskiptavini sem hanna og þróa afurðir sínar í ofurtölvuumhverfi.
Ofurtölvur eru nýttar til þess að leysa margar af helstu áskorunum 21. aldarinnar, til dæmis við hönnun á nákvæmari veðurlíkönum, þróun hagkvæmari og grænni flutningsmáta og úrlausn flókinna rannsókna í læknisfræði og líftækni.
Verkefnið er einstakt hér á landi og þegar þróun þess er lokið mun Endor hafa skipað sér í hóp fárra fyrirtækja í Evrópu með sérhæfingu og sérsniðnar lausnir á þessu sviði. Verkefnið er unnið í samvinnu við franska upplýsingatæknirisann Atos og markmiðið er að þróa lausn sem einfaldar allann rekstur og afhendingu á ofurtölvureikniafli fyrir viðskiptavini þess. Meðal viðskiptavina Atos eru flestir stóru bílaframleiðendur heimsins og verkefnið tengist risasamningi sem Atos gerði við BMW um þjónustafhendingu úr gagnaverum á Íslandi, Þýskalandi og í Svíþjóð.
Umfang samningsins og flækjustig við afhendingu þjónustunnar er mikið og það koma fjölmargir mismunandi aðilar að því. Endanlegt takmark verkefnisins er það haldi utan um afkasta og uppitímamælingar í rauntíma fyrir alla reikniklasa í rekstri, óháð staðsetningu, og stýra þannig viðhaldi og mannskap á hagkvæmari og skilvirkari hátt.
„Við erum sunnlenskt félag í grunninn og helmingur starfsmanna okkar er staðsettur á Selfossi og það er gleðiefni að Uppbyggingarsjóðurinn styrki fyrirtæki í nærsamfélaginu til vaxtar. Þessi styrkur á eftir að nýtast okkur vel við þróun sérhæfðs kerfis sem gerir viðskiptavinum okkar kleift að auka hagkvæmni og skilvirkni í rekstri hjá sér,” segir Gunnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Endor og bætir við að um mjög sérhæfða þjónustu sé að ræða. „En hún hefur alla burði til þess að verða stór þáttur í framtíðarvexti Endor, og mun gera okkur kleift að sækja enn frekar inn á erlenda markaði með lausnir okkar og í þéttu samstarfi við einstakt net samstarfsaðila.”
Endor er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í að hámarka rekstrarhagkvæmni fjárfestinga í upplýsingatækni og nýtir til þess nýjustu tækni í sjálfvirknivæðingu. Vöxtur Endor hefur verið hraður frá stofnun árið 2015 og vinnur félagið nú með fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Má þar nefna Íslandsbanka, DK hugbúnaðarhús og RÚV.