Umhverfisstofnun hefur gefið út endurnýjað starfsleyfi fyrir urðunarstað Skaftárhrepps á Stjórnarsandi. Starfsleyfið öðlast þegar gildi og gildir til 27. nóvember 2029.
Starfsleyfið veitir rekstraraðila heimild til að taka á móti allt að 200 tonnum af úrgangi á ári til urðunar, kurlunar og geymslu. Einungis er heimilt að urða úrgang sem á uppruna sinn í Skaftárhreppi.
Umhverfisstofnun auglýsti opinberlega tillögu að starfsleyfi í sumar. Ein athugasemd barst á auglýsingartímanum. Þar var gerð athugasemd við umfang leyfisins, eignarhald á landareignum á Stjórnarsandi og hins vegar mengun sem hugsanlega bærist frá staðnum.
Í niðurstöðu Umhverfisstofnunar kemur fram að leyfilegt heildarmagn sem taka má á móti á staðnum breytist ekki í nýju leyfi, þá eru ekki merki um mengun frá staðnum í nýlegum mengunarmælingum og það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að breyting sú sem verður á framkvæmdinni á staðnum, það er að urða heimilsúrgang í stað ösku frá brennslu, mun ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Hvað varðar eignarhald á landareigninni, þá hefur það ekki áhrif á útgáfu leyfisins þar sem auglýst og staðfest deiliskipulag gerir ráð fyrir urðunarstaðnum á þessu svæði.