Umhverfisverðlaun Bláskógabyggðar 2016 voru veitt í Reykholti síðastliðinn laugardag á hátíðinn Tvær úr Tungunum.
Eftir fjölmargar ábendingar og fyrirspurnir þá varð niðurstaða umhverfisnefndar Bláskógabyggðar að veita Garðyrkjustöðinni Engi í Laugarási verðlaunin. Eigendur garðyrkjustöðvarinnar eru Ingólfur Guðnason og Sigrún Reynisdóttir.
Verðlaunin eru veitt fyrir framlag til lífrænnar ræktunar í fjölda ára ásamt því að bjóða upp á náttúruupplifun fyrir gesti sína. Þar má t.d. nefna fallegan lækninga- og kryddjurtagarð, einstakt völundarhús úr limgerði gróðursett 2005 og táslugarð sem tekinn var í notkun sumarið 2014.