Lögreglu á Suðurlandi barst í gær tilkynning frá eiganda tveggja hrossa, sem fundust dauð í beitarhaga í Landeyjum, þess efnis að þau hafi mögulega verið skotin.
Vísir greindi fyrst frá málinu í gær.
Vegna þessa fór lögregla á vettvang ásamt dýralækni og voru hræin skoðuð, hvort á sínum stað en rétt um kílómeter var á milli þeirra.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að nákvæm skoðun hafi leitt í ljós að engin merki eru um skot eða skotsár á hræjunum og virðast hrossin hafa drepist af náttúrulegum ástæðum.
Rannsókn málsins telst því lokið af hálfu lögreglu.