Enn brennur sina

Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu í Hveragerði fékk tilkynningu laust fyrir hádegi í gær um gróðureld við Hjarðarból í Ölfusi.

Vegna þurrka undanfarið og lítillar grassprettu er ennþá full ástæða til að óttast sinu- og gróðurelda í Árnessýslu.

Rétt áður slökkviliðsmennirnir komu á vettvang voru þó þeir sem brennunnar nutu auk vakthafandi varðstjóra BÁ búnir að slökkva eldinn.

Slökkviliðið telur fulla ástæðu til þess að brýna fyrir fólki nauðsyn þess að ganga vel frá eldstæðum þar sem varðeldar eru kveiktir til þess að minnka líkurnar á útbreiðslu elds með tilheyrandi hættu.

Fyrri greinSúrsætt jafntefli í Mosfellsbæ
Næsta greinKvíga skellti sér í heita pottinn