Fákasel í Ölfusi hefur opnað á nýjan leik en þar er glæsilegur veitingastaður með nýjan fjölbreyttan matseðil. Daglega verður boðið upp á stuttar hestasýningar í reiðhöllinni.
Rekstraraðilar veitingastaðarins eru þau Sindri Daði Rafnsson og Írís Dröfn Kristjánsdóttir sem áður ráku Sindra bakarí á Flúðum við góðan orðstír. Þau hafa nú þegar opnað veitingastaðinn sem tekur um 80 manns í sæti auk þess sem nýr og glæsilegur 160 manna veislusalur hefur verið tekinn í notkun fyrir stærri hópa og einkasamkvæmi.
Í reiðhöllinni verða daglega 15 mínútna hestasýningar. Það eru þau Agnes Hekla Árnadóttir og Högni Freyr Kristínarson sem hafa veg og vanda að sýningum á íslenska hestinum og gangtegundum hans. Þau leggja áherslu á spennandi upplifun áhorfenda þar sem þau sýna fjölbreytta hesta í einstakri ljósadýrð með 40 metra skjá í bakgrunni með lifandi náttúrmyndum.
Hestasýningarnar eru ætlaðar ferðamönnum og öðrum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér íslenska hestinn. Sýningar verða daglega klukkan 17:15 en einnig verður hægt bóka sérstakar sýningar fyrir stærri hópa.