Tveir lettneskir ríkisborgarar sem lögreglan á Selfossi handtók við Reykjaskóg í Bláskógabyggð í fyrrakvöld voru leiddir fyrir dómar í gærkvöldi þar sem gerð var krafa um síbrotagæslu.
Lögreglan hefur til rannsóknar meiriháttar líkamsárás og innbrot í sjö sumarbústaði í Bláskógabyggð í nóvember. Í öllum innbrotunum var flatskjáum stolið ásamt ýmiss konar rafmagnstækjum og öðrum munum.
Gefin hefur verið út ákæra á annan manninn vegna á annan tug auðgunarbrota sem hann er sakaður um að hafa framið síðastliðið sumar og í haust.
Það er mat lögreglu að brýnt sé að taka manninn úr umferð til að stöðva brotaferil hans.
Dómari tók sér frest fram yfir hádegi í dag til að ákveða hvort mennirnir skuli sæta gæsluvarðhaldi eða ekki.