Ökumaður um sextugt fékk aðsvif undir stýri í Bláskógum í Hveragerði eftir hádegi í dag.
Bifreiðin hafnaði á hliði við gámasvæði bæjarins og var ökumaðurinn meðvitundarlaus þegar lögreglu og sjúkralið bar að garði.
Hann var fluttur á sjúkrahús til Reykjavíkur.