FréttirFéll af baki á Selfossi 27. janúar 2014 14:11Ung stúlka féll af hestbaki í hesthúsahverfinu á Selfossi síðdegis á föstudag. Hún var með hjálm og slapp við höfuðmeiðsl en kvartaði yfir eymslum í baki og mjöðm. Stúlkan var flutt á heilsugæslustöðina á Selfossi til frekari skoðunar.