Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun, föstudaginn 28. október og eru veiðar heimilaðar í alls níu daga á tímabilinu, sem lýkur 27. nóvember.
Eru þetta heldur færri dagar en undanfarin ár og má því búast við mikilli ásókn veiðimanna í veiðilendur. Það getur einnig orðið til þess að veiðimenn fari til veiða í tvísýnu veðri frekar en að missa af veiðideginum.
Undanfarin ár hafa björgunarsveitir ítrekað verið kallaðar út til að leita að rjúpnaveiðimönnum en sem betur fer hefur slíkum leitum farið fækkandi.
Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma á framfæri nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í veiðiferðina og bendir á www.safetravel.is þar sem finna má allt er tengist öruggu ferðalagi. Þar geta veiðimenn einnig skilið eftir ferðaáætlun og sótt búnaðarlista.
Almennar umgegnisreglur við skotvopn
- Geymið byssu og skot á læstum stöðum
- Ekki til og frá veiðistað með byssuna hlaðna
- Hafið öryggið ávallt á þegar gengið er með byssu
Ferðareglur rjúpnaskyttunnar
- Fylgist vel með veðurspá og hagið ferðaáætlun samkvæmt henni
- Gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum. Breytist áætlunin látið þá vita.
- Kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um
- Hafið með góðan hlífðarfatnað
- Takið með sjúkragögn og neyðarfæði
- Fjarskipti þurfa að vera í lagi, gps, kort, áttaviti og talstöð/sími og kunnátta verður að vera til staðar til að nota þau
- Verið viss um að farartækið sé í góðu ásigkomulagi áður en lagt er af stað
- Ferðist ekki einbíla
- Takið með grunnviðgerðardót fyrir farartækið og festið allan farangur
- Munið að akstur og áfengi fer ekki saman
- Ef ferðast er í bíl spennið beltin og notið hjálma, brynjur og annan hlífðarfatnað ef farið er á veiðislóðir á götuskráðu fjórhjóli.
- Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur