Lögreglumenn fundu um 150 – 200 grömm af maríhúana í farangursgeymslu bíls í Herjólfi þegar hann var að fara frá Þorlákshöfn um hálffjögur í dag.
Ökumaður bílsins reyndist vera undir áhrifum fíkniefna og að auki hafði hann verið sviptur ökuleyfi.
Það var fíkniefnahundurinn Luna sem fann fíkniefnin.
Farþegi í bifreiðinni, 22 ára gamall karlmaður og eigandi hennar, viðurkenndi að eiga efnin. Hann sagði þau ætluð til eigin nota.