Fimm í einangrun á Suðurlandi

sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Fimm einstaklingar eru í einangrun á Suðurlandi í dag, vegna COVID-19 og 21 í sóttkví.

Tveir eru í einangrun á Selfossi og 7 í sóttkví, að því er fram kemur í daglegum tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Þá eru 123 einstaklingar í skimunarsóttkví á Suðurlandi eftir að hafa farið í skimun á landamærunum.

Í gær greindust sex kórónuveirusmit innanlands og var einn þeirra ekki í sóttkví en þetta kemur fram á covid.is.

Fyrri greinAppelsínugul viðvörun: Ekkert ferðaveður
Næsta greinEyrarbakkaljósmyndir Sigurðar kaupmanns í Húsinu