Fimm í einangrun á Suðurlandi

sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Fimm manns eru í einangrun í dag á Suðurlandi vegna COVID-19, í þremur sveitarfélögum í Árnessýslu.

Þrír eru í einangrun í Þorlákshöfn og þar eru átta í sóttkví. Bæði í Hrunamannahreppi og á Selfossi er einn í einangrun og einn í sóttkví.

Þar að auki eru þrír í sóttkví í Rangárþingi ytra og einn á Stokkseyri, þannig að samtals eru 14 í sóttkví á Suðurlandi.

Þá er 121 í skimunarsóttkví eftir að hafa farið í sýnatöku á landamærunum.

Þetta kemur fram í daglegum tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Fyrri greinHamarsmenn komnir í úrslit
Næsta greinSelfoss úr leik í bikarnum