Fimm umsækjendur eru um starf sóknarprests í Hveragerðisprestakalli sem auglýst var á dögunum.
Umsækjendurnir eru Erna Kristín Stefánsdóttir, mag. theol., sr. Gunnar Jóhannesson, sr. Hannes Björnsson, Ingimar Helgason, mag. theol. og sr. Ninna Sif Svavarsdóttir.
Skipað verður í embættið frá og með 1. desember næskomandi, til fimm ára.