Umsóknarfrestur um stöðu skólastjóra í Grunnskólanum á Hellu rann út síðastliðinn mánudag og eru umsækjendurnir fimm talsins.
Þeir eru Halldóra Guðlaug Helgadóttir, Kristín Sigfúsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Magnús Matthíasson og Samúel Örn Erlingsson.
Umsækjendur hafa verið boðaðir í viðtöl strax eftir páska og reiknað er með að niðurstaða liggi fyrir í lok apríl.